Tunglið eða máninn er eini náttúrulegi fylgihnöttur jarðarinnar og nálægasta fyrirbæri himinsins ef frá eru talin geimför og gervitungl. Tunglið er bjartasti hnötturinn á næturhiminum og sá eini þar sem við getum skoðað landslagið með berum augum.Saga tunglsins er nátengd sögu Jarðar en talið er að það hafi myndast þegar hnöttur á stærð við Mars rakst á Jörðina skömmu eftir myndun sólkerfisins. Tunglið hefur líka sögulega þýðingu fyrir okkur mannfólkið því það er eini hnötturinn sem menn hafa stigið fæti á utan Jarðar.