Tunglmyrkvi verður þegar tunglið gengur inn í skugga jaðar. Þetta gerist aðeins þegar sólin, jörðin og tunglið eru í línu og jörðin milli sólar og tunglsins. Tunglmyrkvar geta því aðeins orðið þegar tungl er fullt og fer inn í skugga jarðar.
Sólmyrkvi verður þegar tunglið er milli sólar og jarðar. Sólmyrkvar verða því aðeins þegar tungl er nýtt. Frá jörðu séð gengur tunglið fyrir sólina og varpar skugga á jörðina. Rétt eins tunglmyrkvar eru sólmyrkvar einkum þrenns konar: Almyrkvar, hringmyrkvar og deildarmyrkvar. Sú staðreynd að sólin og tunglið eru álíka stór á himninum veldur því að tunglið getur almyrkvað sólina frá jörðu séð. Á Íslandi sást almyrkvi seinast við suðurströnd landsins árið 1954. Næst sést almyrkvi frá Íslandi 12. ágúst 2026. Í Reykjavík stendur almyrkvinn yfir í 1 mínútu og 10 sekúndur.