Meðan reikistjörnurnar voru að vaxa féllu á þær smáir loftsteinar og stórir - jafnvel jafnstórir og hinir vaxandi hnettir á þeim tíma - sem þá breyttu möndulhalla þeirra eða möndulsnúningi með tilviljanakenndum hætti. Snúningsás jarðar hallar 23,44° miðað við sólbauginn. Jörðin heldur þessum möndulhalla á braut sinni umhverfis sólina. Vegna möndulhallans hallar norður- og suðurhvelið í átt til og frá sólinni á sex mánaða fresti. Þegar norðurhvelið hallar í átt að sólinni er sumar á norðurhvelinu en vetur á suðurhvelinu þar sem það hallar frá sólinni. Hið gagnstæða á sér stað sex mánuðum síðar. Ef möndulhallinn væri enginn þá væru engar árstíðir og sólargangur væri eins alla daga ársins. Þess vegna er líka yfirleitt sagt að möndulhallinn sé meginorsök árstíðaskiptanna.